Klukkan

Auglýsing

Aðrir vitleysingar sem blogga

11. janúar 2007 klukkan 22:21
Jæja.....

Ég veit svo sem ekki hvað ég á að segja ykkur..... Þessi dagur er búin að vera ósköp venjulegur.... Vinna, heim, sjá um heimilið, bíða eftir einhverjum pípara, sem kemur örugglega rétt áður en ég fer í ræktina, Jebb mín bara dugleg þessa dagana..... Hvað meir???  Koma heim og fara snemma að sofa, mæting kl. 5 í fyrramálið...... Gráta  Er ekki alveg að nenna því.... En það þýðir ekkert að hugsa svona!!! Thailand kallar!!!Svalur

Talandi um Thailand..... Þegar ég hef sagt frá því þá spyr fólk "hvað ætlaru að gera þar???  Á að ná sér í kall, hahahaha". En ég var svo að segja einum vinnufélga að ég væri að fara og þá spyr hann, "ertu að fara að ná í barn??" Ég var alveg Hissa og varð að segja ha til að vera viss um að ég hafi heyrt rétt.......

Ég nefndi nú eitthvað hana systur mína í síðasta bloggi og eins og ég sagði þá er hún snilld..... Í vinnunni í morgun bauð hún góða kvöldið og kl var nú ekki NEMA 9:50. Það er nú svona að hýrast í einhverri kompu, eins og hún segir sjálf frá,  allann daginn og þá meina ég ALLANN daginn......

En nú þarf ég að fara að gera mig klára í ræktina

Þangað til næst
bless

Rósa Friðriksdóttir
3 athugasemdir

Fyrsta skiptið, tékkum hvernig það er!

11. janúar 2007 klukkan 02:27
Halló
Ég er ekki alveg viss hvað ég er að gera hér......

En þar sem ég er að fara til Thailands í Febrúar þá ætla ég að reyna að blogga eitthvað á meðan ég er úti og segja frá.
Við erum nokkur að fara út..... Til dæmis 7 frá Akureyri og svo bætis við hópur í Reykjavík. Það er komin mikil spenna í mig og mína og þá sérstaklega systur mína, Ebbý..... Hún er notla bara snilldin ein  
Bravo  Hana er farið að dreyma ýmilegt og það eru áhyggjur
undirmeðvitundarinnar!!!!!! Takk fyrir pent.

Ég fór í ræktina í gær..... Það var bara gaman.....Gott að svita og svona.... Það var fullt af fólki þarna þegar ég kom og ég sá fram á það að ég yrði þarna langt fram á kvöld...... Ebbý er að vinna þar og þá er ekkert hægt að svindla....Saklaus Þá fékk ég líka að vita það að Siggi í vaxtaræktinni er búinn að fá leyfi til að stækka!!! Til Hamingju með það!!!Glottandi
Það er ekkert meir sem ég get svo sem sagt svona í fyrsta bloggi....
Hafið það bara gott þangað til næst!Glottandi







Rósa Friðriksdóttir
3 athugasemdir