Til hvers er ég að blogga????
Jamm og jæja......
Það er allt gott að frétta af mér..... Síðustu dagarnir úti voru bara frábærir eins og allir hinir dagarnir..... Fór að kafa með Ebbý og Bigga..... Það var GEÐVEIKT gaman.... Lenti í smá veseni með eyrun og grímuna..... Þegar það var allt komið í lag þá gekk þetta bara vel....
Síðan þegar við erum komin til Keflavíkur og búin að versla í fríhöfninni þá kemur smá vesen..... Einhver kerlin réðst nánast á okkur og fór að spyrja hvaðan við værum að koma, hvað við höfðum verið lengi og hvað við versluðum fyrir mikið..... Og vildu helst nákvæmt bókhald..... En elskan hún mamma var þarna og svaraði nánast fyrir okkur......
Síðan er lífið eiginlega bara búið að ganga sinn vanagang......
Er að vinna upp í vísað og það gengur bara þokkalega.....
En nú er ég að fara að gera okkur klár í að fara í bústað um páskana og því vil ég bara segja: GLEÐILEGA PÁSKA og hafið það sem allra best.....