Spennandi
04. febrúar 2007 klukkan 14:37
Jæja.....
Það er bara allt að gerast núna....
Föstudagurinn var lengi að líða..... Sérstaklega í vinnunni.... Ég var farin að halda á milli 11 og 12 að tíminn væri bara stopp..... En þegar klukkan var loks 11:50 þá fór ég og var ekki lengi að láta mig hverfa!!
Svo er ég orðin svo spennt að ég sef lítið..... ég fór að sofa um 1 aðfaranótt laugardags og vaknaði kl 5:30.... Þvílíkt hress og bara hélt að klukkan væri að verða 8..... En þegar ég sá hvað klukkan var í raun þá lagðist ég upp í sófa og fór að horfa á einhverja mynd á bíórásinni......
En ég verð nú að segja það að ég fór aftur inn í rúm um 8:30 og svaf til 10:30...... Það var líka gott......
Svo fór ég í klippingu kl 14.... Var komin á staðinn 10 í og þegar Hulda sér mig þá heilsar hún og horfir eitthvað asnalega á mig svo spyr hún..... Heitir þú ekki Rósa?? Jú segi ég, ekkert nema spurningamerki...... Já, þú áttir að mæta HÁLF tvö..... Og ég varð eins og skítur
og hélt að ég myndi ekki fá klippingu..... Og spurði og hún sagði mér að spyrja Finn og hann sagði jú jú tökum eina snögga..... Sjúkkett maður.... Ég hélt svo og skildi það alveg ef Finnur hefði orðið eitthvað þurr á manninn við mig en hann var svo bara frábær..... Þegar hann spurði hvað ætti að gera þá sagði ég að ég væri að fara út í sólina og vildi að hann tæki vel af...... Hann að sjálfsögðu spyr hvert ég væri að fara og þegar ég segi það þá spyr hann..... Hvað heitir maðurinn þinn??? Og ég varð aftur eins og skítur og sagði nottla Páll Brynjar.... En ekki hvað?? Þá segir hann nú okey..... Æi ég var að klippa strák um daginn sem sagðist vera þangað líka..... Og þá kviknaði á perunni minni og ég segi "Birgir?" Já, segir Finnur, þekkir þú hann?
Og ég segi þá auðvitað Já, hann er kærast systur minnar!!! Svo bara klippir hann mig og þegar ég er búin að borga þá biðst ég afsökunar á að hafa komið seint og hann segir að það sé allt í lagi...... Ég hefði átt að hringja um eittleitið eins og ég var að hugsa um til að vera viss....
En nú er allt að verða klárt fyrir Thai..... Er búin að taka saman flest allt..... Brynjar og Baldur þurfa varla að hafa neitt með sér.... Sérstaklega ekki Baldur.... Það er hægt að kaupa það allt úti......
Ég hélt á tímabili að vegabréfið mitt væri týnt einhverstaðar niðri í geymslu..... Það yrði ekki gaman að fara að leita að einni lítilli bók í öllum þessum kössum!!!!
En sem betur fer þá var það í KASSA hér uppi!!!!
Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja ykkur meira......
Systir mín átti afmæli á föstudaginn......
Og svo í gær þá áttu Anna og Patrik afmæli..... Til hamingju öll....
Er þetta ekki bara að verða svolítið gott..... Það verður kannski ekkert skrifað fyrr en við erum búin að koma okkur fyrir á Pattaya....
Hafið það sem allra best..... Mun hugsa til ykkar úr sólinni og hitanum.......
Þangað til næst..... Bless bless!!!!!
Það er bara allt að gerast núna....
Föstudagurinn var lengi að líða..... Sérstaklega í vinnunni.... Ég var farin að halda á milli 11 og 12 að tíminn væri bara stopp..... En þegar klukkan var loks 11:50 þá fór ég og var ekki lengi að láta mig hverfa!!
Svo er ég orðin svo spennt að ég sef lítið..... ég fór að sofa um 1 aðfaranótt laugardags og vaknaði kl 5:30.... Þvílíkt hress og bara hélt að klukkan væri að verða 8..... En þegar ég sá hvað klukkan var í raun þá lagðist ég upp í sófa og fór að horfa á einhverja mynd á bíórásinni......
En ég verð nú að segja það að ég fór aftur inn í rúm um 8:30 og svaf til 10:30...... Það var líka gott......
Svo fór ég í klippingu kl 14.... Var komin á staðinn 10 í og þegar Hulda sér mig þá heilsar hún og horfir eitthvað asnalega á mig svo spyr hún..... Heitir þú ekki Rósa?? Jú segi ég, ekkert nema spurningamerki...... Já, þú áttir að mæta HÁLF tvö..... Og ég varð eins og skítur
Og ég segi þá auðvitað Já, hann er kærast systur minnar!!! Svo bara klippir hann mig og þegar ég er búin að borga þá biðst ég afsökunar á að hafa komið seint og hann segir að það sé allt í lagi...... Ég hefði átt að hringja um eittleitið eins og ég var að hugsa um til að vera viss....
En nú er allt að verða klárt fyrir Thai..... Er búin að taka saman flest allt..... Brynjar og Baldur þurfa varla að hafa neitt með sér.... Sérstaklega ekki Baldur.... Það er hægt að kaupa það allt úti......
Ég hélt á tímabili að vegabréfið mitt væri týnt einhverstaðar niðri í geymslu..... Það yrði ekki gaman að fara að leita að einni lítilli bók í öllum þessum kössum!!!!
Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja ykkur meira......
Systir mín átti afmæli á föstudaginn......
Og svo í gær þá áttu Anna og Patrik afmæli..... Til hamingju öll....
Er þetta ekki bara að verða svolítið gott..... Það verður kannski ekkert skrifað fyrr en við erum búin að koma okkur fyrir á Pattaya....
Hafið það sem allra best..... Mun hugsa til ykkar úr sólinni og hitanum.......
Þangað til næst..... Bless bless!!!!!
Rósa Friðriksdóttir