Jæææjaaa....... Thailand!!!
27. janúar 2007 klukkan 15:51
Það er nú barasta allt gott að frétta af mér og mínum.... Ég held að ég sé sú spenntasta á heimilinu hvað þessa utanlandsferð okkar varðar..... Ég þarf líka að fara að hugsa um það sem á að fara ofaní töskur og svoleiðis!!!!!
Undanfarnir dagar hafa ekki verið neitt öðruvísi en áður..... Vinna, rækt, heim og þannig eftir götunum..... Að vísu þá var ég nú óvenjudugleg í vinnunni þessa vikuna.... Vann til 3 alla dagana nema föstudag.... Það er gott að geta farið heim um hádegi á föstudegi og ég tala nú ekki um eftir að maður hafi mætt kl. 8 en ekki 7.... Svaf yfir mig!
Ég veit svo sem ekki alveg hvað ég á að segja við ykkur.... Það er ekkert sérstakt búið að gerast hjá mér..... Ég er bara að bíða eftir að geta komist út og líka aftur heim..... Því það bíður eftir okkur víst hvolpur þegar við komum heim..... Hann er þvílíkt sætur.....
En hvað um það.....
Það er eitt sem ég er ekki alveg að skilja..... Sogblettir.... Hvað finnst fólki svona gaman að gera þetta og láta gera þetta við sig...... Mér persómulega finnst þetta ljót og svo fer þetta svo illa með húðina..... Ég hef EINU sinni fengið svona og ég var ekki sátt!!! Hvað meira.....
Dómskerfið á Íslandi..... Eru menn ekki að djóka..... Kynferðisafbrotamenn fá í mesta lagi 5 ár og sitja svo ekki einu sinni helminginn inni..... Skattaafbrot fá hærri dóm! En hvað með fórnarlömbin??? Þau þurfa að lifa með þessu alla sína æfi og ná aldrei að verða heil og sátt við lífið....Ég held að það sé ekki nóg að fá einhvern pening í skaðabætur og svo bara látið gott heita..... Það verður að taka þyngra á þessu fólki!!!!
Ég er ekki alveg viss um hvað ég á að segja meira..... Ég er að hugsa um að fara að sinna barninu mínu og láta þetta gott heita í bili.....
Vona bara að þið hafið það sem allra best.....
Rósa Friðriksdóttir
;)